|
|
24.10.2006 09:09:45 / svalae
Það er komið nýtt blogg! hvet ykkur til að kíkja á það......
Þessi síða er rusl. Dáin.
http://svali-nammnamm.blogspot.com
Sjáumst þar!
»
08.09.2006 16:00:17 / svalae
Vá ýkt.
Ég ætla sko að blogga meira. Ég hef nefninlega orðið vör við
nokkurn múgæsing (múg-æsing) fyrir utan húsið undanfarið. The
crowd wants more. Jebb, þau fá ekki nóg af mér. Ég var meira
að segja beðin um eiginhandaráritun í skólanum um daginn. Ég
smellti fingrunum í þríhyrning og hrópaði "HELLO, PERSONAL SPACE!!" Setti svo upp svipinn
sem ég hef lært af áralöngu áhorfi á Clueless. As if
skohh!!
Það hefur annars margt kostulegt
gerst undanfarið. Hera hefur tekið nokkrar syrpur. Mér dettur helst
í hug vafasamt atvik á kaffi Kultura um síðustu helgi þegar
hún sveiflaði sér inn í hóp af fólki og hóf að syngja Dirty
slut af mikilli ákefð. Já, hún birtist mér í draumi í
spaghettídansi með hendur upp í loft. "Ég er skítug drusla,
lalala.."
- Spaghettídans er nýtt orð yfir
hreyfingarnar sem Hera á til að framkvæma þegar hún er búin með
fjóra/fimm. Hann er þannig að allir útlimir verða mjúkir sem
spaghettí og sveiflast bylgjukennt í takt við tónlistina. Við
köllum það að "taka Spaggann".
Ég veit samt ekki hvort að Spagginn
er góð leið til að höstla. Hera eyddi nefninlega öllu MR
busaballinu í tala við gifta karlmenn og var mjög fúl yfir að þeir
skyldu eyða dýrmætum tíma hennar sem hefði annars geta nýst í
sveitt og slefugt káf frá, tja, einhverjum busanum? En kannski
liggur meira að baki. Kannski er þetta einhver
skrýtin leið fyrir þá til að segja að í raun séu þeir orðnir
þreyttir á einkvæninu. Þeir gætu litið á Spaghettídansinn sem
eitthvað nýtt og spennandi. Auðvitað með tilliti til sveigjanleika
dansarans. Svo að kannski var Hera í raun að bjarga nokkrum
unglingspiltum úr dauðadæmdu hjónabandi. You never
know....
Ég ætla að láta þetta duga í bili,
en mun vera dugleg að dreifa vandræðalegum stundum Heru á netið.
Því eftir allt saman... hvar værum við án þeirra?


Skál!!
»
23.08.2006 18:50:19 / svalae
Þá er
fyrsti skóladagurinn búinn. Ótrúlegt að þegar ég kom inn í
skólann fannst mér eins og ég hefði aldrei farið neitt. Það
hefur ekki mikið breyst.. stundarskráin er örlítið þéttari og
reyndar held ég bara að nýi dönskukennarinn minn sé nokkuð
heill á geði. Við bekkurinn lentum nefninlega illa í því í
fyrra. Ég ætla ekkert að fara nánar út í það En annars er
nú frekar þægilegt að þurfa ekki að taka strætó. Svo er líka
gaman að vera ekki ráðvillti businn lengur. Ég vil líka bjóða
Heklu velkomna í Kvennó
Þetta var í
heildina frekar slappt. Ég sat fyrsta þýskutímann með hryllingi og
kom meira að segja með tvær ferskar hugmyndir.
1) Hvort
við ættum ekki bara að hafa þetta svona utanskóla og
próflausan áfanga. Svona "þýska með heimspekilegu ívafi". Þá
fengjum við tækifæri til þess að tengja þýskuna við daglegt amstur
og umhverfi.
2) Hvort
við mættum fara.
Kennarínan var
ekkert hrifin af þessari snilld . Mér sýndist hún meira að segja
krota eitthvað í kladdann um leið og hún bölvaði mér milli
samanbitinna varanna. Svo ætla ég að reyna að líta vel út á morgun.
Það tókst ekki sem skyldi í dag. Allavegana gaf ég upp alla von
eftir að ég vaknaði með slef út á kinn í sögu. Það þýðir ekkert
annað en bara snemma að sofa í kvöld svo maður verði hress í
glósuvöðvanum! (hahahahahah)
Kv.
Svali
»
15.08.2006 20:25:34 / svalae
Ég hef
snúið aftur.
Ég hef yfirgefið sveitina fyrir
fullt og allt.
Ég var ekkert dugleg að blogga í
sumar, enda engin tölva í sveitinni. Bara Þjóðverjar. Já, þvílíkt
og annað eins af Þjóðverjum sést hvergi nema í Þýskalandi.
Þjóðverjasambýlingar, Þjóðverjavinnufélagar,
Þjóðverjaviðskiptavinir. Ég vildi að ég gæti sagt að öll kynni mín
af Þjóðverjum væru krydduð hláturkryddi. Því miður voru þau það
ekki. Þess vegna sé ég fram á ÞRJÚ hrottaleg ár í þýskutímum hjá
henni Ástu. Frasar eins og "betale hier?", "danke schon"
og "einmal" eru brennd í viðkvæma sál mína að eilífu. Erfið
lífsbarátta hefur gert það að verkum að Þjóðverjar hafa
ekki mikinn tíma fyrir glens og gaman. Nei, það er alvara lífsins
sem ræður. Survival of the fittest. Þú færð ekki kók með því að
"hlæja" framan í afgreiðlsufólkið, svo mikið er víst.
(tek það fram að þetta er ekki ALGJÖR
alhæfing, ég kynntist tveimur ágætis Þjóðverjum í
sveitinni)
Já, sumarið er víst búið og í
tilefni af því stefni ég að því að koma þessari síðu á fullt. Vona
að þessir tveir sem að eru búnir að heimsækja í dag haldi áfram og
breiði út orðið. Ég held áfram.
Kjósið Svala!
"because there IS more"
»
29.05.2006 09:35:15 / svalae
Bæbb.
»
18.05.2006 12:10:42 / svalae
Halló! Ég hef ákveðið að blogga. Þar sem að ég er aftur
orðin afspyrnulélegur bloggari er mikið að frétta. Því miður,
þá er ég það léleg að ég myndi ekki nenna að skrifa um það
allt... En þetta er helst:
- Ég er
komin með bílpróf!!!!
- Hef
rúntað mikið síðustu daga, á þó ekki bíl..
- Ég
kláraði prófin í gær

- Í
tilefni af því skellti ég mér á lokaball Kvennó
- Það
var gaman, Hófý tók nokkur númer
- Hún
gekk jafnvel svo langt að bjóða Kvennaskóladreng undir pilsið
sitt

- Það
fór þannig fram: ,,Hey, viltu sjá undir pilsið mitt?´´
- Eftir
ballið röltum ég og Rakel á Nonna á tánum og deildum
BeikonNonna
Svona
er staðan:
- Er
pínu aum eftir gærkvöldið
- Ég er
rosalega, rosalega blönk

- Er þar
að auki komin með sekt á tvær bókasafnsbækur
- Mig
langar svooo í skó og nokkrar vel valdar snyrtivörur
- Ef
einhver hefur áhuga, þá langar mig sérstaklega í -Möndlu
BodyButter- úr Body Shop (skrifið þetta niður)
- Fæ
lítinn stuðning vegna sumarvinnunnar minnar, en hún er á
Geysi.
- Græt
því í koddann á hverju kvöldi vegna þess hve Stella er
grimm
Þetta
er framundan:
- Júrovisjónpartý í kvöld!!!

- Annað
svoleiðis á laugardaginn

- Kirkjubæjarklaustur, here we come!!
- Svo er
það bara bæbæ vinir, halló Geysir.
Jæja,
partý í kvöld. Mig dreymdi hræðilegan draum í fyrrinótt um Sylvíu.
Þetta var mjög slappt hjá henni og við komumst ekki í lokakeppnina.
Ég vona innilega að þetta hafi öfuga merkingu (plíís, Guð). Annars
finnst mér kominn tími á okkur. ,,Ísland sigrar heiminn´´. Við erum
búin að næla í Miss World, við eigum bara eftir Ólympíuleikana,
World Cup og svo auðvitað Júróvisjón.
Við
vinkonurnar ætlum að skella okkur á Kirkjubæjarklaustur um þarnæstu
helgi að horfa á nokkra sveitta hjólakappa maka sig útí drullu. Já,
þetta verður athyglisvert því að það eru slatti að fara
þangað. Meiraðsegja allmargar yndisfagrar Kvennaskólapíur og
ég tók mig til í gær og bauð öllum sem vildu að sofa í
tjaldinu mínu (bara stelpum þó). Jább, við leysum það seinna, ég og
tjaldfélagarnir.
Svo er
ég nú bara svo gott sem farin. Ég verð að vinna í búð og sjoppu á
Geysi og gisti þar. Ég kem þó heim stöku sinnum, svo er ég líka
búin að fá loforð um svakaleg roadtrip sem enda á heimsókn til
mín. Jebb, ég finn lyktina af góðu sumri.
Ég mun
reyna að vera dugleg að blogga áður en ég fer. Lofa samt
engu.
Svali
»
12.05.2006 18:04:06 / svalae
ERKOMINMEÐBÍLPRÓFSTOPVINSAMLEGASTKOMMENTAÐUSTOP
P.s.Þ.e.a.s.ef þú hefur eitthvað um það að
segja...
»
20.04.2006 12:03:40 / svalae
Ég átti afmæli í gær en ég gleymdi að
blogga. Hérna er það sem gerðist:
- Ég var veik á afmælisdaginn og fór ekki í
skólann
- Skrapp þó í hádegishlénu og fékk köku og
afmælissöng

- Gat ekki borðað kökuna

- Ég fékk eina afmælisgjöf
- Það var myndin Corpse Bride og hún var frá Magna
gömlum félaga mínum
- Reyndar fékk ég líka smá umslag frá
ömmu

- Ég er ekki komin með
bílpróf
Þetta er bara komið, fyrir utan allar
afmæliskveðjurnar. Þær björguðu deginum. Takk, allir sem sendu mér
svoleiðis
Til hamingju með afmælið, ég!
»
14.04.2006 12:52:31 / svalae
Góðan daginn!
Dagurinn í dag er ljótur.... en engu að síður
afmælisdagurinn hennar Örnu. Til hamingju með daginn!!
Í tilefni af því ætla ég að skella hérna einni
mynd af henni:

Já, það muna eflaust margir eftir þessari, en ég
fann hana ásamt fleirum inná heimasíðu sem hefur ekki verið hreyfð
í tvö ár. Þetta er mikill fjársjóður skal ég segja ykkur. Hérna
koma nokkrar í viðbót:


Ylfa í sparifötunum..

Já Drífa nýtur lífsins svo sannarlega

Ég, Heiður og Birta í saumatíma
?

Stella, ég og Íris, sannkallaðar
skátagellur!
Njótið vel!
»
04.04.2006 22:04:57 / svalae
»
03.04.2006 22:06:45 / svalae
Þetta er helst í fréttum:
- Ég er þreytt eftir helgina, veit ekki af hverju
- kannski af því að ég varð mér úti um nokkra bjóra heima hjá Evu
Margréti í boði Stellu
takk fyrir afmælið Eva!!
- þér er sko boðið í mitt afmæli!
- svartur Yaris sóar lífinu fyrir utan hjá Drífu
- annar svertingi sóar lífinu inni hjá henni
- Kvennóterminatorinn fer á kostum í skólanum
- æðir um skólann og rænir og ruplar
- "haha, ég er hinn raunverulegi sigurvegari" hugsar hann svo á
leiðinni heim
- mikið hlegið um helgina, Arna tók nokkur númer
- missti þó víst af aðalnúmerinu...??
- Allir þreyttir
- Allir latir
Fleira var það nú ekki. Bæbb
»
29.03.2006 22:44:30 / svalae
»
21.03.2006 23:06:40 / svalae
Ég vil
tileinka þetta blogg Drífu afmælisbarni en fyrr í kvöld var
haldin henni til heiðurs ógleymanleg óvænt afmælisveisla. Hún
fékk allan pakkann, köku og kórónu og tvær gjafir (báðar frá
mér). Froskabaukur og fíla-karmellur. Jebb, þetta var sú
flottasta í sögunni, auðvitað haldin fyrir þá flottustu En
ég ætla ekki að hafa þetta lengra, til hamingju
Drífa!!
»
15.03.2006 10:22:14 / svalae
Jæja...
Eins og fram
kemur í blogginu hér að neðan er ég á rangri hillu í lífinu... ég
er í raun stærðfræðingur og heimurinn er að fara á mis við
mikilvægar uppgötvanir o.s.fr.v. En ég kann ekkert í stærðfræði. Ég
hef náð að krafsa mig frá fjórum upp í fimm og vonast til að
með einstaklega góðri hegðun nái ég því sem þarf til að útskrifast
úr 1. bekk. Þess vegna veit ég ekkert hvað ég á að gera núna. Allt
mitt nám á málabraut til einskis. Allar þessar þrotlausu
kennslustundir í setningafræði og núþálegum þýskum sögnum. Hugsa
sér allan peninginn sem ég hefði getað sparað (mamma).
Það fer ekki á
milli mála að ég hef náð botninum. Næsta skref er að viðurkenna
vandamálið og takast á við það.
Gúdbæ.
»
13.03.2006 10:03:19 / svalae
|
Veit ekki alveg hvað þetta á
að þýða!
You should be a Math major!
Like Pythagoras, you are analytical, rational, and when are always
ready to tackle the problem head-on! |
|
Mathematics |
|
83% |
|
Linguistics |
|
67% |
|
Dance |
|
67% |
|
Philosophy |
|
67% |
|
Anthropology |
|
58% |
|
Art |
|
58% |
|
Theater |
|
50% |
|
English |
|
50% |
|
Sociology |
|
42% |
|
Biology |
|
33% |
|
Chemistry |
|
25% |
|
Journalism |
|
17% |
|
Psychology |
|
17% |
|
Engineering |
|
17% | |
Dísa® www.deeza.blogspot.com
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|